Færsluflokkur: Bloggar
4.7.2007 | 20:53
3 mínútur ...
Held það taki ekki nema 3 mínútur að lesa svona texta vel yfir og lagfæra innsláttarvillur, er það til of mikils ætlast? Er kannski full smámunasöm, en fyrirsögnin má þó allavega vera rétt
Landsbankinn í Smáralind fékk viðurkenningu jafnréttisnefndar Kópavogs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.7.2007 | 20:44
Skil ekki!
Nú er ég alveg steinhissa. Ég skil það mjög vel að það sé nauðsynlegt að reyna að koma sem flestum heimilislausum einstaklingum af götunni og á heimili og þannig séð er staðsetningin ekkert út í hött. Þetta er á svæði 101 þar sem alla hægt er að sækja flest alla þjónustu fótgangandi og húsnæðið hentar vel undir slíkt heimili - En hér kemur það sem ég skil bara alls ekki, af hverju er ekki skilyrði að íbúarnir hætti í neyslu????? Á vef Félagsmálaráðuneytisins segir um starfsemina: "Heimilisfólki verður boðið uppá almenna og sérhæfða heilbrigðis- og hjúkrunarþjónustu og heildstæða félagslega ráðgjöf og stuðning til þess að ná tökum á lífi sínu, meðal annars að sækja áfengis- og fíknefnameðferð. Ekki er skilyrði fyrir dvöl á heimilinu að viðkomandi hætti neyslu." Það á semsagt að bjóða þessum karlmönnum að sækja áfengis- og fíkniefnameðferð, gott mál, en hver er hvatinn? Þeir hafa þak yfir höfuðið á fínum og góðum stað en mega halda áfram í neyslu!! Mér þykir mun eðlilegra að skilyrði sé fyrir búsetu sé engin neysla vímuefna og hjálpa þannig körlunum að koma lífi sínu á réttan kjöl. Slíkt skilyrði er sett fyrir þær konur sem dvelja á Konukoti þó þar sé reyndar annað fyrirkomulag á þjónustunni, en þar mega konurnar ekki neyta áfengis né vímuefna á meðan þær eru í húsinu. Svo þykist velferðarráð koma á móts við íbúa í nágrenninu með því að fækka íbúum úr 10 í 8.... Ef neysla væri bönnuð þykist ég nokkuð viss um að annað hljóð væri í íbúum í nágrenninu!!!
Ákveðið að hefja rekstur heimilis fyrir heimilislausa í haust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.7.2007 | 21:18
Ársæll ríður á vaðið
Nú er mitt fólk farið í hálendisvaktina en þau lögðu af stað á tveim jeppum föstudaginn 29. júní. Þetta er í annað sinn sem Bjsv. Ársæll tekur þátt í þessu frábæra verkefni og eins og í fyrra völdum við að taka Fjallabaksleið, enda er það rosalega skemmtilegt og fjölbreytt svæði. Því miður þurfti að "splitta" hópnum upp og senda annan bílinn á Sprengisand, en eitthvað kom upp á hjá þeirri sveit sem átti að vera þar og þurftum við því að hlaupa í skarðið. En við erum líka best Þetta er svo mikið dekurlið að þau fengu sendar ferskar matvörur í dag, ég fór ekki nema í 3 búðir í gær til að fá allt af listanum og svo var farið í búð aftur í morgun til að fá nýtt brauð. Það sem maður gerir ekki fyrir þessar elskur Þau eru búin að vera heppin með veður enn sem komið er og vonandi helst það bara svoleiðis áfram. Annars er alveg tilvalið að fá smá skúrir í morgunsárið, svona til að binda rykið á vegunum. Ég hlakka til að fá þau í bæinn og fá ferðasöguna beint í æð.
Mynd af hópnum af síðu mbl.is
Ég hefði nú alveg viljað fara með en þar sem ég ætla bara að leyfa mér vikusumarfrí ákvað ég að láta fjölskylduna ganga fyrir, svona einu sinni Planið er að skreppa norður til Akureyrar og hafa þar "base camp", skreppa svo í dagsferðir eitthvað þarna í kring. Vonandi verður bara ágætis veður, allavega verður að vera þurrt og helst ekki mikið rok og ekki væri verra ef einhverjir sólargeislar næðu til okkar. Ætla samt ekki að vera of kröfuhörð.
Látum þetta duga í bili!
Björgunarsveitir á hálendinu í sumar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2007 | 13:27
Stór, stærri, stærstur
Nú er orðið svolítið langt síðan ég bloggaði síðast, og nei, það tengist ekkert kommentinu frá blaðamanninum góða. Ég elska svona fréttir sem eru ekki fréttir, eru meira svona dægurflugur og skemmtileg skrif um eitthvað sem í raun skiptir ekki máli en er samt hluti af veröldinni. Í vikunni sem leið voru til dæmis tvær yndislegar fréttir sem ég ætlaði að skrifa eitthvað skemmtilegt um en gaf mér ekki tíma í það. Önnur var með svo yndislega fyrirsögn "Hakkaðir bananar" og fjallaði fréttin um að hakkarar væru búnir að hakka sig inn á síðu Banana hf. Hin var algjör gullmoli, sé eftir að hafa ekki tekið afrit af henni. Hún var um skjaldböku sem var á leið sinni norður eftir einhverjum vegi þar sem var 60 km hámarkshraði!!!! Svona skot bjarga oft deginum, svo elsku bestu fréttaritarar, ekki hætta
Ég hef verið svo upptekin þessa dagana í skólanum, en einu sumarfaginu er að ljúka og er lokaprófið núna á mánudaginn, sem þýðir að ég á að vera að læra en ekki blogga. Svo er besti dagur sumarsins núna, allavega sá besti hingað til, og maður er tilneyddur til að hanga í bænum Þar spilar inn í prófið á mánudaginn og sumarsýning HRFÍ sem er núna um helgina. Ég fór með voffínuna mína á sýninguna og niðurstaðan var svona lala. Hún fékk 1. einkunn eins og alltaf en dómaranum þótti hún of feit...... já ok, hún er kannski aðeins í holdum, bara svona eins og mamma sín. Markmiðið er semsagt að ganga á fullt af hólum og fjöllum í sumar og koma okkur báðum í form fyrir októbersýninguna. Henni til afsökunar er hún að lóða og er ekki alveg sú kátasta þessa dagana. Hún elskar yfirleitt að fara inn í sýningarhringinn og elskar alla athyglina en í morgun vildi hún bara ljúka þessu af sem fyrst. Dómurinn var samt rosalega góður fyrir utan "fitu"kommentið
En svo ég víki nú að fyrirsögninni minni. Bróðir minn og hans kona, ásamt fjölskyldu hennar og þeirra vinum tókst að framkvæma eitt undraverkið, enn og aftur, og komast aðeins ofar í "ég er stærstur og bestur" keppninni sem virðist hrjá landann þessa dagana, allavega miðað við þessi risavöxnu hjólhýsi sem sjást á götunum. Ekki það að ég sé alveg saklaus í þessari keppni og hjá mér skiptir stærðin máli Þeir voru semsagt að flytja inn eitt stykki 54" jeppadekk, svona bara í ganni.... bera það við bílana sína og skoða möguleikana. Eins og 49" dekkin séu ekki nægilega stór!! Þetta er alveg hreint ótrúlegt ferlíki, það er reyndar örlítið mjórra en 49" dekkin og að því leyti henta þau betur, en vá, þar er varla að ég sjái yfir dekkið Hér eru tvær myndir sem sýna gripinn. Sú síðari sýnir hinar ýmsu stærðir dekkja og það stærsta er að sjáfsögðu 54" dekkið. Næst á eftir koma 49", 46", 44", 42" og loks dekk undan óbreyttum jeppa!!
Það verður svo spennandi að fylgjast með því hvort einhver splæsi í 3 dekk til viðbótar og láti reyna á þetta. Það verður allavega ekki ég
En nú er best að ég fari að kíkja á glósurnar mínar. Ég ætla að freistast til að læra úti á palli til að nýta sólargeislana aðeins. Gallinn er helstur sá að í blokkinni eru ansi mörg börn og þeim liggur frekar hátt rómur og því eins og maður sé staddur á leikskóla En sjáum hvað ég þrauka lengi!
Eigið góðan dag
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.6.2007 | 19:41
Gúrkutíð vaðandi í villum...
Þetta kallar maður nú gúrkutíð í fréttamennsku.... og svo er greinilegt að villupúkinn hefur ekki fengið að leika sér með textann fyrir birtingu.
Svo er náttúrulega alveg magnað að ég skuli eyða tíma í að blogga þessa stórmerkilegu og skemmtilegu frétt
Þetta grágæsarpar með unga sína brást ókvæða við þegar ljósmyndari nálgaðist meira en góðu hófi gengdi. Þær hvæstu og breiddu út vængi til að koma því til skila að næruveru var ekki óskað. Það er mikið að gerast í náttúrunni þessa daganna og þó veröldin virðist ljúf á yfirborðinu gildir það eitt að nota þau ráð sem duga til að komast af.
Hingað og ekki lengra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
8.6.2007 | 16:52
Frábær stjörnuspá
Hristu upp í rútínunni. Gerðu þetta skemmtilega sem þig hefur lengi langað til að gera. Ekkert er of villt, og vinirnir munu fylgja þér. Jibbý!
Þetta er alveg ótrúlegt - ýmsar prakkaralegar pælingar hafa nefnilega verið í gangi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2007 | 13:31
Gott veganesti fyrir helgina!
Lífið er skemmtun. Meiri sannleikur: það er röð af skemmtunum. Ekki taka það of alvarlega, vertu bara með partí-brosið á sínum stað. Fagnaðu hverju litlu skrefi fram á við.
Stjörnuspáin mín fyrir daginn í dag er heldur betur fín föstudagsspá og ég held ég taki hana bara með trompi Góð byrjun á góðri og annasamri helgi.
"Litla" systir mín útskrifast í dag sem stúdent úr MR og heldur rosalega flotta veislu í tilefni dagsins. Þar á ég pottþétt eftir að belgja mig út af allskyns fínerí og gotteríi. Í kvöld er svo stefnan sett á að hitta róðrarliðið í smá partýi en þá fara fram andlegar hvatningaraðferðir sem eru nauðsynlegar fyrir róðrakeppni eins og þá sem við tökum þátt í á sjómannadaginn
Laugardagurinn mun þó að öllum líkindum fara í að læra en það eru verkefnaskil í skólanum bæði á laugardaginn og svo líka á þriðjudaginn. Engin smá keyrsla í þessum kúrs sem ég er í núna í skólanum, það er verið að koma heilli önn fyrir á 1 mánuði og það er alveg svakalegt. Þetta er sem betur fer skemmtilegt fag, hagnýt upplýsingakerfi, sem er tölvufag. Þrátt fyrir mikið álag held ég að þetta fyrirkomulag henti mér betur þar sem keyrslan er stöðug og maður kemst ekki upp með annað en að læra frá fyrsta degi, ekkert slór leyfilegt hér
Sunnudagurinn, sjómannadagurinn, er svo dagur helgarinnar en þá verðum við í Björgunarsveitinni með ýmsa skemmtilega atburði niðri á Miðbakka. Stærstur en án efa kappróðurinn sem stjórn tekur þátt í ásamt öðrum vöskum félögum. Í fyrra fengum við silfur fyrir annað sætið í keppni blandaðra áhafna. Samkeppnin verður öllu meiri þetta árið svo pressan er gífurleg, annars er nú markmiðið að sigra hssr líkt og í fyrra Ég hvet alla til að kíkja á Miðbakkann um helgina og hafa gaman af. Hér má sjá dagskrána http://www.sjomenn.is/fullfrettir.php?id=19
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.5.2007 | 23:20
Ríkissjónvarpið ógurlega og afturför Stöðvar 2
Alveg hreint ótrúlegt með sjónvarpsdagskrána um helgar, það er eins og stöðvarnar keppist um að hafa sem lélegasta dagskrá!!
Nú er semsagt laugardagskvöld og ég í stuði til að liggja upp í sófa með popp og Tab og glápa á sjónvarpið. Skoða dagskrána vel og vandlega og vona hið besta en nei, á Stöð2 eru tvær hasarmyndir á dagskrá svo þar er ekki úr miklu að velja. Fyrri myndin, Blade, er reyndar ágæt en þar sem hún er ekki ný af nálinni er ég búin að sjá hana. Seinni myndin er mótorhjólamynd með Ice Cube í aðalhlutverki - nei takk! Skjár1 er með fullt af þáttum eins og venjulega en því miður eru það akkúrat þættir sem ég fíla ekki. Þá er bara einn séns eftir, Ríkissjónvarpið ógurlega, skyldueign allra sjónvarpseigenda og þar á ég ekki von á að finna nokkuð. En viti menn, eftir að hafa þýtt dagskrána yfir á skiljanlegt kvikmyndamál (dagskráin í Ríkissjónvarpinu er alltaf á íslensku og oft algjörlega ómögulegt að átta sig á hvaða mynd verður sýnd!!) þá kom í ljós að Sjónvarpið er að sýna tvær þrusumyndir Fyrri myndin er Köngulóarmaðurinn (Spiderman), reyndar fyrsta myndin frá 2002. Sú síðari er Hnefaleikaundrið..... já og hugsið nú, hvaða mynd ætli það sé?? Ha, hvern grunaði að Sjónvarpið myndi sýna óskarsverðlaunamyndina Million Dollar Baby frá árinu 2004. Ég er allavega svo heppin að hafa ekki séð þessa mynd og ætla sko að koma mér vel fyrir og glápa á hana.
Þá er það spurningin, af hverju er maður að púkka upp á sjónvarpsstöð eins og Stöð2 sem er með hreint út sagt glataða helgardagskrá, er rándýr og leyfir sér svo í ofanálag að vera með auglýsingahlé í sjónvarpsþáttunum. Mér finnst eins og það sé verið að hafa okkur áskrifendur að fíflum - það er bara ekki hægt að réttlæta auglýsingahlé í þáttum í áskriftarsjónvarpi!!! Ástæðan fyrir því að maður keypti áskrift að Stöð2 hér um árið var einmitt út af kvikmyndunum sem var venja að sýna um helgar en nú er maður áskrifandi út af nokkrum sápuóperum sem er núna hægt að kaupa á netinu.
Held ég fari bara að hætta þessu
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.5.2007 | 23:08
Að gerast tölvusnillingur!
Svei mér þá, ég held að ég sé að gerast snillingur í tölvum..... ég er að fikta í stillingunum á bloggsíðunni en það er alveg heill hellingur sem hægt er að fikta í. Búin að finna 216 litakóda og valkvíðinn er heldur betur farinn að segja til sín Ég er búin að prófa alls kyns litasamsetningar og datt niður á eina þá ljótustu en það voru fjólubláir textakassar og skær gulur bakgrunnur, alveg hrikalegt enda var ég mjög fljót að breyta því. Þetta er hin ágætasta afþreying svona með sjónvarpsglápinu, annað augað á Americas Next top Model og Jericho og hitt á tölvunni! Maður er nú einu sinni kona og því mjög fjölhæf
Það er verst ef ég verð bara önnum kafin að breyta litum á síðunni í staðinn fyrir að skrifa eitthvað gáfulegt. Ég er að vinna í því vera duglegri að skrifa, það virðist bara alltaf vera svo mikið að gera þegar mér dettur eitthvað sniðugt í hug að segja. Ég afrekaði það þó að setja inn myndir af prinsessunni minni og nokkrar myndir úr Kvennaferð 4x4 svo þetta er nú ekki alslæmt. Annars var ég í prófi í gær sem gekk bara ágætlega sem er líka eins gott eftir að hafa sofið lítið og drukkið óheyrilega mikið af hinum guðdómlega og dýrmæta drykk TaB. Enda var ég hálf ónýt í gær, allur líkaminn í einhverju rugli bara. Svona álíka miklu rugli og sjónvarpsdagskráin á Stöð2 í gærkvöldi. Mikið agalega var leiðinlegt að það væri í sífellu verið að rjúfa dagskrána vegna frétta um stjórnarmyndun. Það var nú svosum ágætt að hafa horft á fréttaskotin, maður verður nú að vera aðeins inni í pólitíkinni svona til að vera kjafthæfur í vinnunni.
Ég varð reyndar svolítið hvumsa þegar ráðherralisti Samfylkingarinnar var gerður opinber. Mér finnst súrt að varaformaður flokksins, Ágúst Ólafur, skuli þurfa að lúta í lægra haldi fyrir kynjajafnréttinu og þetta eru orð kvenmanns! Jú því mér finnst ekki að hæfileikar eigi að víkja fyrir kynjajafnrétti, þarna er verið að ganga fram hjá varaformanninum því hann er karlmaður - hvert er jafnréttið hér!! Æ mér finnst þetta kynjadæmi stundum ganga of langt, farið út í öfgar held ég
Nú er ég búin að fikta svo mikið í tölvunni að Touch Padið datt úr sambandi... hehe... svo mig grunar að ég þurfi að restarta elskunni. Kannski er ég ekki svo mikill tölvusnillingur eftir allt saman
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2007 | 17:29
Gengið á Úlfarsfellið
Ég og Tara skottuðumst á Úlfarsfellið áðan í veðurblíðunni. Mikið rosalega var það hressandi, enda ágætlega svalt þarna uppi í fjallagolunni. Við vorum ekki nema tæpan hálftíma upp og vorum álíka lengi niður enda fórum við einhverja kjánalega leið niður Tara hljóp örugglega sem samsvarar tvisvar sinnum upp á fellið, algjör snilld. Þetta er sennilega ekkert alveg skemmtilegasta gönguleiðin, allavega ekki svona snemma að vori. Útsýnið er samt alveg meiriháttar og alveg þess virði að rölta þarna upp til að njóta þess. Þetta er líka hvorki erfið né löng gönguleið og rétt við borgarmörkin. Gæti ekki verið betra, enda eigum við stöllur alveg pottþétt eftir að fara þetta aftur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
Tenglar
HUNDALÍF
- Hundaræktarfélag Íslands
- Hvuttar.net
- Dýraríkið
- Garðheimar
- Gæludýrabúðin Trítla
- Dýrabær
- Hill's hundafóður
- Dýralæknamiðstöðin Grafarholti
- Dýraspítalinn í Víðidal
FERÐALÖG OG VEÐUR
- Ganga.is
- Ferðaklúbburinn 4x4
- Færð á vegum
- Betra veður Eini veðurvefurinn sem vit er í
- Veðurstofa Íslands
- Akureyri
- Útivist
- Ferðafélag Íslands
ÁHUGAVERT
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar