Leita í fréttum mbl.is

Ríkissjónvarpið ógurlega og afturför Stöðvar 2

Alveg hreint ótrúlegt með sjónvarpsdagskrána um helgar, það er eins og stöðvarnar keppist um að hafa sem lélegasta dagskrá!!

Nú er semsagt laugardagskvöld og ég í stuði til að liggja upp í sófa með popp og Tab og glápa á sjónvarpið.  Skoða dagskrána vel og vandlega og vona hið besta en nei, á Stöð2 eru tvær hasarmyndir á dagskrá svo þar er ekki úr miklu að velja.  Fyrri myndin, Blade, er reyndar ágæt en þar sem hún er ekki ný af nálinni er ég búin að sjá hana.  Seinni myndin er mótorhjólamynd með Ice Cube í aðalhlutverki - nei takk!  Skjár1 er með fullt af þáttum eins og venjulega en því miður eru það akkúrat þættir sem ég fíla ekki.  Þá er bara einn séns eftir, Ríkissjónvarpið ógurlega, skyldueign allra sjónvarpseigenda og þar á ég ekki von á að finna nokkuð.  En viti menn, eftir að hafa þýtt dagskrána yfir á skiljanlegt kvikmyndamál (dagskráin í Ríkissjónvarpinu er alltaf á íslensku og oft algjörlega ómögulegt að átta sig á hvaða mynd verður sýnd!!) þá kom í ljós að Sjónvarpið er að sýna tvær þrusumyndir GetLost  Fyrri myndin er Köngulóarmaðurinn (Spiderman), reyndar fyrsta myndin frá 2002.  Sú síðari er Hnefaleikaundrið..... já og hugsið nú, hvaða mynd ætli það sé??  Ha, hvern grunaði að Sjónvarpið myndi sýna óskarsverðlaunamyndina Million Dollar Baby frá árinu 2004.  Ég er allavega svo heppin að hafa ekki séð þessa mynd og ætla sko að koma mér vel fyrir og glápa á hana. 

Þá er það spurningin, af hverju er maður að púkka upp á sjónvarpsstöð eins og Stöð2 sem er með hreint út sagt glataða helgardagskrá, er rándýr og leyfir sér svo í ofanálag að vera með auglýsingahlé í sjónvarpsþáttunum.  Mér finnst eins og það sé verið að hafa okkur áskrifendur að fíflum - það er bara ekki hægt að réttlæta auglýsingahlé í þáttum í áskriftarsjónvarpi!!! Ástæðan fyrir því að maður keypti áskrift að Stöð2 hér um árið var einmitt út af kvikmyndunum sem var venja að sýna um helgar en nú er maður áskrifandi út af nokkrum sápuóperum sem er núna hægt að kaupa á netinu.  

Held ég fari bara að hætta þessu Angry


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Já, þessar þýðingar hjá þeim á Rúv eru ekki alveg að gera sig og stöð stö er orðin einhver mesta rusl stöð ever með eintómum endursýningum og auglýsingum.......þeir hljóta að fara að detta á rassgatið með það.

Eva Þorsteinsdóttir, 26.5.2007 kl. 23:26

2 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Satt og rétt, sjónvrpið og rás 2 afleitt allr helgar. Held að það sé einhver samningur í gangi milli sjónvarpsstöðva og ,,video/diskaleigusjoppa".  My family er það eina í kvöld, bregst aldri og svo Million dollar baby.  En myndin með Richard Gere á stoð 2 var fín.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 26.5.2007 kl. 23:31

3 identicon

Það góða við Sjónvarpið eru allir fræðslumyndirnar sem þeir sýna og ekkert auglýsingahlé...sem eru óþolandi!! Það er einmitt öllum fræðsluþáttunum að þakka að hausinn minn er uppfullur af óþarfa og getgátum af ýmsu tagi hehe  Annars eru sunnudagsmyndirnar oft að gera sig, oft.....ekki alltaf hehe. Ef Sjónvarpið væri áskriftarsjónvarp væri ég pottþétt áskrifandi

Harpa (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 23:52

4 identicon

Isspiss... mér dettur ekki í hug að vera áskrifandi af Stöð 2 - ekki merkileg sjóvarpsstöð þar á ferð svona allavegana miðað við hvernig fólk talar um hana. Svo okra þeir svo svakalega á verðinu + auglýsingahlé - bara sillí
Ef RUV væri ekki skylduáskrift þá væri ég ekki heldur með hana !

Skjár 1 er það eina sem er í mínu sjónvarpi þegar ég hef kveikt á því.

Lifi Skjár 1 :)

Eva (IP-tala skráð) 28.5.2007 kl. 15:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband