Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Stór, stærri, stærstur

Nú er orðið svolítið langt síðan ég bloggaði síðast, og nei, það tengist ekkert kommentinu frá blaðamanninum góða.  Ég elska svona fréttir sem eru ekki fréttir, eru meira svona dægurflugur og skemmtileg skrif um eitthvað sem í raun skiptir ekki máli en er samt hluti af veröldinni.  Í vikunni sem leið voru til dæmis tvær yndislegar fréttir sem ég ætlaði að skrifa eitthvað skemmtilegt um en gaf mér ekki tíma í það.  Önnur var með svo yndislega fyrirsögn "Hakkaðir bananar" og fjallaði fréttin um að hakkarar væru búnir að hakka sig inn á síðu Banana hf.  Hin var algjör gullmoli, sé eftir að hafa ekki tekið afrit af henni.  Hún var um skjaldböku sem var á leið sinni norður eftir einhverjum vegi þar sem var 60 km hámarkshraði!!!!  Svona skot bjarga oft deginum, svo elsku bestu fréttaritarar, ekki hætta Tounge

Ég hef verið svo upptekin þessa dagana í skólanum, en einu sumarfaginu er að ljúka og er lokaprófið núna á mánudaginn, sem þýðir að ég á að vera að læra en ekki blogga.  Svo er besti dagur sumarsins núna, allavega sá besti hingað til, og maður er tilneyddur til að hanga í bænum Frown Þar spilar inn í prófið á mánudaginn og sumarsýning HRFÍ sem er núna um helgina.  Ég fór með voffínuna mína á sýninguna og niðurstaðan var svona lala.  Hún fékk 1. einkunn eins og alltaf en dómaranum þótti hún of feit...... já ok, hún er kannski aðeins í holdum, bara svona eins og mamma sín.  Markmiðið er semsagt að ganga á fullt af hólum og fjöllum í sumar og koma okkur báðum í form fyrir októbersýninguna.  Henni til afsökunar er hún að lóða og er ekki alveg sú kátasta þessa dagana.  Hún elskar yfirleitt að fara inn í sýningarhringinn og elskar alla athyglina en í morgun vildi hún bara ljúka þessu af sem fyrst.  Dómurinn var samt rosalega góður fyrir utan "fitu"kommentið Wink

En svo ég víki nú að fyrirsögninni minni.  Bróðir minn og hans kona, ásamt fjölskyldu hennar og þeirra vinum tókst að framkvæma eitt undraverkið, enn og aftur, og komast aðeins ofar í "ég er stærstur og bestur" keppninni sem virðist hrjá landann þessa dagana, allavega miðað við þessi risavöxnu hjólhýsi sem sjást á götunum.  Ekki það að ég sé alveg saklaus í þessari keppni og hjá mér skiptir stærðin máli Blush  Þeir voru semsagt að flytja inn eitt stykki 54" jeppadekk, svona bara í ganni.... bera það við bílana sína og skoða möguleikana.  Eins og 49" dekkin séu ekki nægilega stór!!  Þetta er alveg hreint ótrúlegt ferlíki, það er reyndar örlítið mjórra en 49" dekkin og að því leyti henta þau betur, en vá, þar er varla að ég sjái yfir dekkið Tounge  Hér eru tvær myndir sem sýna gripinn.  Sú síðari sýnir hinar ýmsu stærðir dekkja og það stærsta er að sjáfsögðu 54" dekkið.  Næst á eftir koma 49", 46", 44", 42" og loks dekk undan óbreyttum jeppa!!

54´(1)

 54'(2)

Það verður svo spennandi að fylgjast með því hvort einhver splæsi í 3 dekk til viðbótar og láti reyna á þetta.  Það verður allavega ekki ég Wink 

En nú er best að ég fari að kíkja á glósurnar mínar.  Ég ætla að freistast til að læra úti á palli til að nýta sólargeislana aðeins.  Gallinn er helstur sá að í blokkinni eru ansi mörg börn og þeim liggur frekar hátt rómur og því eins og maður sé staddur á leikskóla Sideways En sjáum hvað ég þrauka lengi! 

Eigið góðan dag Kissing


Gúrkutíð vaðandi í villum...

Þetta kallar maður nú gúrkutíð í fréttamennsku.... og svo er greinilegt að villupúkinn hefur ekki fengið að leika sér með textann fyrir birtingu. 

Svo er náttúrulega alveg magnað að ég skuli eyða tíma í að blogga þessa stórmerkilegu og skemmtilegu frétt Woundering

Mynd 430329Þetta grágæsarpar með unga sína brást ókvæða við þegar ljósmyndari nálgaðist meira en góðu hófi gengdi.  Þær hvæstu og breiddu út vængi til að koma því til skila að næruveru var ekki óskað. Það er mikið að gerast í náttúrunni þessa daganna og þó veröldin virðist ljúf á yfirborðinu gildir það eitt að nota þau ráð sem duga til að komast af.


mbl.is Hingað og ekki lengra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær stjörnuspá

Vog Hristu upp í rútínunni. Gerðu þetta skemmtilega sem þig hefur lengi langað til að gera. Ekkert er of villt, og vinirnir munu fylgja þér. Jibbý!

Þetta er alveg ótrúlegt - ýmsar prakkaralegar pælingar hafa nefnilega verið í gangi Wink


Gott veganesti fyrir helgina!

Vog Lífið er skemmtun. Meiri sannleikur: það er röð af skemmtunum. Ekki taka það of alvarlega, vertu bara með partí-brosið á sínum stað. Fagnaðu hverju litlu skrefi fram á við.

Stjörnuspáin mín fyrir daginn í dag er heldur betur fín föstudagsspá og ég held ég taki hana bara með trompi Smile  Góð byrjun á góðri og annasamri helgi.

"Litla" systir mín útskrifast í dag sem stúdent úr MR og heldur rosalega flotta veislu í tilefni dagsins.  Þar á ég pottþétt eftir að belgja mig út af allskyns fínerí og gotteríi.  Í kvöld er svo stefnan sett á að hitta róðrarliðið í smá partýi en þá fara fram andlegar hvatningaraðferðir sem eru nauðsynlegar fyrir róðrakeppni eins og þá sem við tökum þátt í á sjómannadaginn Wink 

Laugardagurinn mun þó að öllum líkindum fara í að læra en það eru verkefnaskil í skólanum bæði á laugardaginn og svo líka á þriðjudaginn.  Engin smá keyrsla í þessum kúrs sem ég er í núna í skólanum, það er verið að koma heilli önn fyrir á 1 mánuði og það er alveg svakalegt.  Þetta er sem betur fer skemmtilegt fag, hagnýt upplýsingakerfi, sem er tölvufag.  Þrátt fyrir mikið álag held ég að þetta fyrirkomulag henti mér betur þar sem keyrslan er stöðug og maður kemst ekki upp með annað en að læra frá fyrsta degi, ekkert slór leyfilegt hér Tounge

Sunnudagurinn, sjómannadagurinn, er svo dagur helgarinnar en þá verðum við í Björgunarsveitinni með ýmsa skemmtilega atburði niðri á Miðbakka.  Stærstur en án efa kappróðurinn sem stjórn tekur þátt í ásamt öðrum vöskum félögum.  Í fyrra fengum við silfur fyrir annað sætið í keppni blandaðra áhafna.  Samkeppnin verður öllu meiri þetta árið svo pressan er gífurleg, annars er nú markmiðið að sigra hssr líkt og í fyrra Happy  Ég hvet alla til að kíkja á Miðbakkann um helgina og hafa gaman af.  Hér má sjá dagskrána http://www.sjomenn.is/fullfrettir.php?id=19


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband