Leita í fréttum mbl.is

Gengið á Úlfarsfellið

Ég og Tara skottuðumst á Úlfarsfellið áðan í veðurblíðunni.  Mikið rosalega var það hressandi, enda ágætlega svalt þarna uppi í fjallagolunni.  Við vorum ekki nema tæpan hálftíma upp og vorum álíka lengi niður enda fórum við einhverja kjánalega leið niður Wink  Tara hljóp örugglega sem samsvarar tvisvar sinnum upp á fellið, algjör snilld. Þetta er sennilega ekkert alveg skemmtilegasta gönguleiðin, allavega ekki svona snemma að vori.  Útsýnið er samt alveg meiriháttar og alveg þess virði að rölta þarna upp til að njóta þess.  Þetta er líka hvorki erfið né löng gönguleið og rétt við borgarmörkin.  Gæti ekki verið betra, enda eigum við stöllur alveg pottþétt eftir að fara þetta aftur Happy


Hvað svo!!

Nú er spurningin hvað við Íslendingar gerum næst.  Eigum við að leika sama leik og kjósa bara Svíþjóð og Finnland á laugardaginn, eins og Eiríkur stakk upp á, eða kjósa bara löndin sem tilheyra vestur evrópu og hunsa algjörlega austantjaldsríkin! Þetta er allt svolítið kjánalegt en mikið rosalega er freistandi að taka höndum saman og taka upp gamla klíkuskapinn Wink

Áfram Svíþjóð og Finnland!!!!


Austur-Evrópa hvað...

Hvað er í gangi, er þetta Eastern-Eurovision Song Contest eða hvað!

Hvað sem því líður þá var flutningur og framkoma Eiríks Hauks og félaga óaðfinnanleg og okkur til sóma.  Megum vera stolt af okkar manni, ekki spurning.


mbl.is Ísland komst ekki í úrslit Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjörnuspáin í dag!

Vog: Fjárhagurinn rúmar ekki lífstíl þinn! Þú ert samt á uppleið. Þú þarft að eyða peningum til að græða peninga. Fullmótaðu hugmyndir þínar áður en þú leitar utanaðkomandi fjármagns.

Þvílík snilld Wink


Viðskiptahættir dagsins í dag!

Það verður áhugavert hvort Neytendastofa taki boði Byko og skoði tilboðin.  Hvort sem Múrbúðin hafi rétt fyrir sér í þessu máli eða ekki þá held ég að fólk verði aðeins að vera vakandi fyrir hinum ýmsu "tilboðum".  Ég hef nú ekki góða sögu af Byko að segja en þó vonar maður að fyrirtæki af þessari stærðargráðu sé ekki að hafa neytendur af fíflum!!

Maður hefur oft heyrt sögusagnir af tilboðum sem eru í raun ekki tilboð en aldrei fengið staðfestingu á þeim sögum.  Mér dettur einna helst í hug núna 99 kr. tilboðin sem Hagkaup eru stundum með.  Um daginn þá var hægt að kaupa Nóa Sirius páskaegg nr. 1 á 99 kr. stykkið.  Ég ætlaði að kaupa 5 stykki en ákvað þó að athuga fyrst hvað 6 stk. pakkning af eins eggjum kostaði í Bónus.  Viti menn, þar fékk ég 6 stk. á 509 kr. (stykkjaverðið 85 kr.)  Það er því nauðsynlegt að vera meðvitaður.  Almennt verð á þessum páskaeggjum í Hagkaup er 111 kr. svo tilboðið var 12 kr. !!!  Er samt ekki að úthúða Hagkaup og tilboðunum þeirra því ég jú gerði í sömu verslunarferð mjög góð kaup á hvítlauksbrauði Wink


mbl.is BYKO segir ásakanir Múrbúðarinnar tilhæfulausar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

lengi má skemmta sér (og öðrum)...

Árshátíðin var rosalega skemmtileg, missti reyndar af fyrirpartýinu, lagði mig og svaf svo yfir mig Blush  Maturinn var alveg hreint ágætur og þá sérstaklega eftirrétturinn.  Mætingin var mjög góð og mannskapurinn í rosalega góðu stuði, allir virtust skemmta sér konunglega Tounge og sumir voru duglegri en aðrir að skemmta hinum!!

Þetta var sko nauðsynleg upplyfting fyrir prófatímabilið Wink

Gleðilega páska


Helgin

Jæja, nú er aðalfundur Ársæls afstaðinn og ég hélt sæti mínu sem ritari Wink  Fundurinn heppnaðist held ég bara ágætlega og súkkulaðikakan sem var á hlaðborðinu í hléinu var sjúklega góð þó það væri tæpt að maður fengi sykursjokk!!

Árshátíðin er svo í kvöld og verður hún held ég hin glæsilegasta.  Er allavega bara farin að hlakka ágætlega til.  Fínt að lyfta sér aðeins upp áður en prófin hellast yfir með tilheyrandi þunglyndi Sideways  Ég á reyndar eftir að finna eitthvað til að vera í, er jafnvel að hugsa um að kíkja í bæinn og finna einhverjar druslur.  Annars tapaði ég mér aðeins í skókaupum í gær en ég fór á lagersölu Ecco og fleiri merkja og keypti 3 skópör, ohh það er svoooo gaman að kaupa skó Tounge

Svo er bróðir minn að ferma dóttur sína á morgun svo þetta er sko helgi skemmtana og gleði Happy 

Góða helgi.


9 Vizslur fæddust í gær

Gleðitíðindi mikil, en Vizsluparið Húgó og Hera eignuðust 9 myndarlega hvolpa í gær.  Vizslurnar eru í eigu þeirra Ómars og Margrétar - til hamingju með fjölgunina Smile  

Alveg agalegt!

Ég frétti af þessu þann 16. mars og er búin að hreinsa 3 verslanir, keypti 60 2L flöskur Wink

Ætli maður verði ekki að hætta gosdrykkjunni eftir að TaB-ið er uppurið og leggjast í vatnsdrykkju Tounge


mbl.is TaB af markaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TaB hætt í framleiðslu!

Já, mikið rétt.  Vífilfell er hætt að framleiða gæðadrykkinn TaB Frown   Veit ekki hvað ég á að gera í þessu, allavega er þessi dagur mikill sorgardagur hjá mér Crying   Ég fór í Krónuna áðan og keypti allar 2L flöskurnar, alls 24 stykki sem ættu að duga mér í nokkrar vikur Blush

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband