Leita í fréttum mbl.is

Var klukkuð!

Jæja, það kom að því.  Hinn góði drengur Einar Elí klukkaði mig um daginn sem þýðir víst að ég þarf að telja upp 8 atriði um mig og senda svo klukk á einhvern annan sem þarf að gera hið sama.  Svo hér kemur sannleikurinn um mig!!

1. Ég get verið agalega smámunasöm stundum og jaðrar það stundum við fullkomnunaráráttu. 

2. Ég ELSKA mat og ef það væri heilbrigt að vera í laginu eins og epli þá væri ég sennilega epli.  Til að fullkomna máltíðina þarf smá sætindi á eftir, svona eins og einn suðusúkkulaðimola.

3. Ég er svolítil jeppastelpa og vil helst bara aka um á jeppa allan daginn.  Mér finnst rosalega gaman að keyra og á það til að fara á rúntinn.  Kannski þarna sé komin ástæða þess að ég bý í "sveitinni" þar sem það er langt í allt!

4. Hvorki grænmeti né vatn er gott á bragðið, nema einstaka rauðlaukur, sveppir og paprika eru í lagi.  Kál og gulrætur er bara fyrir kanínur og enginn getur sannfært mig um að það sé bragðgott.  Til að salat sé ætt þarf að baða það í fetaosti fyrst.  Ég drekk aðeins vatn þegar ég stunda hvers konar líkamsrækt og þegar ég ætla að vera súper heilbrigð.

5. Ég er rosalega klígjugjörn, bæði á ýmsa lykt og áferð matar.  Þannig get ég varla farið inn í sápu og ilmvatnsbúðir og get alls ekki borðað svona fína osta eins og Camembert.  Að sama skapi er ég ekki mikið fyrir sósur og smjör get ég alls ekki borðað. 

6. Ég er sennilega svolítið óþreyjufull og get með engu móti bara setið og gert ekki neitt.  Verð alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni.

7. Sá á kvölina sem á völina - ég bara get ekki valið á milli möguleika sem eru í boði, sem gerir mig sennilega að dæmigerðri vog.

8. Að lokum verður að viðurkennast að ég er pínu brussa og klaufi og get seint talist kvenleg og prúð ung stúlka Wink

Vonandi hefur þetta varpað einhverju ljósi á mig.  Ég er hins vegar svo margslunginn persónuleiki að ég gæti vel haldið áfram með listann..... Þetta er samt komið nóg í bili en ef einhver er að farast úr spenningi þá bara hafa samband!! 

Ég held ég verði að láta klukkið ganga áfram og skelli því klukki á þær kátu stúlkur Evu og Ingu Rúnu.  Ó já, það sleppur sko enginn.... vúhahaha....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband