Leita í fréttum mbl.is

Helgin

Jæja, nú er aðalfundur Ársæls afstaðinn og ég hélt sæti mínu sem ritari Wink  Fundurinn heppnaðist held ég bara ágætlega og súkkulaðikakan sem var á hlaðborðinu í hléinu var sjúklega góð þó það væri tæpt að maður fengi sykursjokk!!

Árshátíðin er svo í kvöld og verður hún held ég hin glæsilegasta.  Er allavega bara farin að hlakka ágætlega til.  Fínt að lyfta sér aðeins upp áður en prófin hellast yfir með tilheyrandi þunglyndi Sideways  Ég á reyndar eftir að finna eitthvað til að vera í, er jafnvel að hugsa um að kíkja í bæinn og finna einhverjar druslur.  Annars tapaði ég mér aðeins í skókaupum í gær en ég fór á lagersölu Ecco og fleiri merkja og keypti 3 skópör, ohh það er svoooo gaman að kaupa skó Tounge

Svo er bróðir minn að ferma dóttur sína á morgun svo þetta er sko helgi skemmtana og gleði Happy 

Góða helgi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband